Botox Fyllingarefni


Í gegnum tíðina hafa lýtalæknar notað ýmis efni til að sprauta í húðina til þess að grynnka hrukkur í andliti, aðallega kringum munninn og á enni. Einnig hafa efni verið notuð til að setja í varir til að bæta útlit þeirra og stækka ef þær eru rýrar.

Algengasta efnið sem notað er í dag í þessum tilgangi á Íslandi er hyaluronsýra sem er náttúrulegt efni sem m.a. fyrirfinnst í brjóski. Efnið er til í mismunandi seiglu  til hagræðis eftir því í hvaða tilgangi það er notað.  Efninu er sprautað inn í leðurhúðina í ákveðinni dýpt undir hrukkur eða dældir til að slétta úr þeim eða grynnka. Efninu er komið fyrir nokkru dýpra í varir til að stækka þær. Líkaminn eyðir efninu á vissum tíma og eru áhrifin því ekki varanleg. Algengt er að efnið endist í u.þ.b. eitt ár og í besta falli upp undir tvö ár. Í einstaka tilfellum eyðist það þó mun hraðar eða jafnvel á fáeinum mánuðum.
 

Er einhver áhætta fólgin í notkun fyllingarefnis?

Nánast engin áhætta er fólgin í notkun hyaluronsýru. Ofnæmisviðbrögð þekkjast vart og engir skurðir eru gerðir til að koma efninu inn. Þá er breytingin sem er framkvæmd ekki varanleg heldur fjarar út á ákveðnum tíma eins og fyrr er getið.

Hvað þarf ég að hafa í huga áður en ég læt setja í mig fyllingarefni?

Best er að hafa sem skýrasta mynd fyrirfram af því hvers þú væntir af notkun fyllingarefnis. Ræða þarf þær væntingar af hreinskilni við lýtalækninn svo að hann geti gert sér grein fyrir því hvort fyllingarefnið geti uppfyllt væntingar þínar. Jafnframt þarf að hafa í huga að þó að góður árangur náist er hann ekki varanlegur og þarf að endurtaka innsprautun efnisins með vissu millibili ef viðhalda á árangri.

Hvernig á ég að undirbúa mig fyrir notkun fyllingarefnis?

Nánast engan undirbúning þarf þar sem um tiltölulega einfalda aðgerð er að ræða. Einungis þarf að mæta á tilsettum tíma án nokkurs andlitsfarða á þeim svæðum sem á að meðhöndla.

Hvar fer innsprautun fyllingarefnis fram?

Á stofu Ólafs Einarssonar lýtalæknis á 4. og 6. hæð í Domus Medica.

Þarf svæfingu eða deyfingu?

Hægt er að sprauta inn fyllingarefni án deyfingar og er það stundum gert.  Algengast er þó að staðdeyfa a.m.k. að einhverju leyti þau svæði sem meðhöndla á, t.d. varir eða enni. Svæfing er óþörf.

Hvað gerist þegar efninu er sprautað í mig?

Lýtalæknirinn sprautar inn efninu sem jafnast í leðurhúðina með afar fíngerðri nál undir þær hrukkur sem meðhöndla á. Síðan jafnar hann út efnið með fingrunum.  Þar sem viðkomandi er vakandi getur hann fylgst með því sem gert er í spegli og tekið þátt í að ákvarða hversu mikið efni er notað á hverjum stað, ekki síst í varir.

Hversu langan tíma tekur innsprautun?

Meðferð tekur um 20 til 45 mínútur eftir aðstæðum og umfangi.

Hvernig verður ástand mitt strax á eftir?

Dálítill roði og þroti á hinum meðhöndluðu svæðum er eðlilegur en ætti að vera horfinn á tveim til þrem dögum. Ef deyfing hefur verið notuð fjarar hún út á tveim til fimm klukkustundum. Fyrir getur komið að vart verði við mar á stöku stað þar sem efninu hefur verið sprautað inn, sem í flestum tilvikum hverfur á innan við viku.

Hvaða væntingar ætti ég að hafa varðandi breytt útlit?

Grunnar hrukkur geta horfið alveg eftir ísprautun á meðan þær dýpri hverfa ekki alveg heldur grynnka og mildast. Ef bætt er í varir ætti árangur að geta orðið í samræmi við óskir þínar, ekki síst vegna þess að þú ert vakandi á meðan meðferð fer fram og ákvarðar efnismagnið að mestu leyti sjálf(ur). Eins og fram hefur komið er mikilvægt að gera sér grein fyrir að líkaminn eyðir efninu og áhrif meðferðarinnar fjara út á vissum tíma. Endingin er einstaklings- og svæðisbundin, oft í kringum eitt ár, í besta falli tvö ár en í einstaka tilfellum fáeinir mánuðir. Þá er ending meiri undir hrukkum en þegar fyllt er í varir. Ef ending er stutt í vörum og viðkomandi líkar breytingin kemur ísetning fitu í varir til greina, en það er mun meira mál en innsprautun fyllingarefnis.

Upplýsingar fengnar frá Ólafi Einarssini lýtalæknir

Ólafur hefur starfað sem læknir í meira en þrjá áratugi. Hann hefur lokið sérnámi bæði sem sérfræðingur í almennum skurðlækningum og sem sérfræðingur í lýtalækningum.

Upplýsingar fengnar með samþykki Ólafs Einarssonar af vef hans og þar eru líka enn meiri fróðleik að finna, einnig er hægt að hafa samband við hann á heimasíðuni hanns Nánar lytalaeknir.is>>

Förðun.is ehf l Sími: 578-2200 & Netfang fordun@fordun.is